Fyrirtækjalausnir

Hjá BL er fjölbreytt úrval fólks- og atvinnubíla sem uppfylla mismunandi þarfir í rekstri fyrirtækja. Kynntu þér kosti fyrirtækjalausna BL og þær þjónustuleiðir sem við höfum að bjóða hér að neðan eða sendu okkur fyrirspurn um hvernig við getum aðstoðað þig.

_Q9A4596
_Q9A4166

Hagkvæmni, þægindi og topp þjónusta

Við vitum að góð þjónusta gerir gæfumuninn, sérstaklega þegar um er að ræða atvinnutæki. Því höfum við hannað þjónustulausnir okkar með það í huga að hámarka aðgengi og lágmarka rask fyrir viðskiptavini. Við bjóðum viðskiptavinum okkar þjónustusamninga þar sem markmiðið er að hámarka þægindi og hagkvæmni þegar það kemur að rekstri bílsins.

Við sjáum um allt frá A til Ö
Sölusvið Sævarhöfða
Benedikt Emilsson
Söluráðgjafi
Sölusvið Sævarhöfða
Jóhann Berg Þorgeirsson
Söluráðgjafi

Fyrirtækjalausnir BL

Sérfræðingar í atvinnubílum

Við búum yfir langri reynslu og víðtækri þekkingu á þjónustu við stóra og smáa bílaflota fyrirtækja. BL er stærsta bílaumboð landsins með öflugt þjónustuteymi, varahlutaverslun og verkstæði sem mætir þörfum fyrirtækja með sértækri þjónustu og lengri opnunartíma

Allt á einum stað

Hjá atvinnubíladeild BL færðu allt frá litlum þjónustu og sölumannsbílum til stærri atvinnubíla frá Renault og Iveco Bus og BL býður auk þess eitt mesta úrval landsins af fólksbílum í öllum stærðum og gerðum. Við eigum því auðvelt með að finna hagkvæmustu lausnina fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Allur flotinn á einum stað

Góður bíll er besti vinnufélaginn. Hjá okkur bíða þín viljugir gæðingar af öllum stærðum og gerðum. Klárir í flutningana, snattið eða þjónustuferðirnar og vilja ólmir bera fyrir þig verkfærin og varahlutina hvert sem verkefnin kalla ykkur. Komdu og veldu rétta bílinn til að létta þér störfin.

  • Traustir vinnufélagar
  • Liprir, hagkvæmir og rúmgóðir
  • Hafa sannað sig við íslenskar aðstæður

Fjármögnun eftir þínum þörfum

Viltu kaupa?

BL er í samstarfi við öll fjármögnunarfyrirtæki landsins sem bjóða bílafjármögnun. Ráðgjafar okkar hjálpa þér að finna hentugustu leiðina til þess að fjármagna kaupin. Ef um endurnýjun bíla er að ræða er hægt að setja notaða bíla upp í kaupin.

Viltu leigja?

Ef það hentar þínu fyrirtæki frekar að leigja bíla þá höfum við lausn sem gæti hentað þér þar sem BL býður öllum sínum viðskiptavinum að leigja bíla í langtímaleigu. Innifalið í leigunni er allur rekstrarkostnaður fyrir utan orkugjafa bílsins og mánaðargjaldið helst fast út leigutímann. Hægt er að stilla af leigutíma eftir þínum þörfum þó almennt viðmið sé 12 - 36 mánuðir. BL býður fyrirtækjum upp á þjónustuvakt sé þess óskað en það getur hentað fyrirtækjum með stærri bílaflota þar sem flókið getur verið að halda utan um akstur og ástand margra bíla í einu.

Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjafa BL til að fá frekari upplýsingar um fjármögnun sem hentar þínum þörfum.

Frábær þjónusta

Við léttum þér reksturinn

Þjónusta við rekstur atvinnubíla er okkar styrkur. Þegar kemur að þjónustuskoðun eða viðhaldi er mikilvægt að verkin stoppi ekki á meðan. Við leggjum okkur fram um að flýta öllu ferli við þjónustuna þannig að hlutirnir geti gengið sinn vanagang hjá þér eins og frekast er kostur.

Aðstoð við flotastjórn

Fyrirtækjum með fjóra bíla eða fleiri stendur til boða sérstakur tengiliður sem heldur utan um öll mál varðandi stjórnun bílaflotans.

Sérhæfð verkstæðismóttaka

Þægilegt móttökuumhverfi, WiFi, tengi til að hlaða síma, aðstaða til að vinna i tölvu við skrifborð, boðið er upp á kaffi og okkar fræga te ásamt nýsteiktum ömmukleinum.

_Q9A4708

Fyrirtækjalausnir BL

Hagkvæmur og sveigjanlegur kostur í bílarekstri

Langtímaleiga er frábær valkostur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem velja hagkvæmni þess að langtímaleigja nýja bíla frekar en að kaupa. Þannig er hægt að spara pening, lágmarka áhættu, auka þægindi og forðast ófyrirséðan aukakostnað. BL býður fjölbreytt úrval nýrra bíla til langtímaleigu.

Nánar um langtímaleigu