Langtímaleiga

Hagkvæmur og sveigjanlegur kostur í bílarekstri

Langtímaleiga er frábær valkostur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem velja hagkvæmni þess að leigja nýja bíla frekar en að kaupa. Þannig er hægt að spara pening, lágmarka áhættu, auka þægindi og forðast ófyrirséðan kostnað. BL býður fjölbreytt úrval nýrra bíla til langtímaleigu.

_Q9A4586

Kostir langtímaleigu

Hátt þjónustustig

Allir bílar eru nýir og því í fullri ábyrgð. Komi eitthvað óvænt upp á þá er kappkostað við að veita framúrskarandi þjónusta til að leysa fljótt og vel úr hlutunum.

Yfirlit yfir flotann

Við höldum utan um alla bíla í sérhæfðu flotakerfi. Fyrirtæki í viðskiptum geta þannig á hverjum tíma fengið upplýsingar og gott yfirlit yfir sinn flota, væntar þjónustuskoðanir og fleira.

Hlunnindabílar

Fyrirtæki geta leigt bíla og nýtt til hlunninda fyrir starfsfólk sitt. Til að einfalda vinnuna og utanumhald er hlunnindagrunnur allra viðeigandi bíla reiknuð út og send tímanlega til viðskiptavina. Þannig fer ekkert á milli mála.

Þjónusta

Við sjáum um viðhaldið, smurningu, vetrar og sumardekk, afslátt af eldsneyti og svo margt fleira sem gerir lífið miklu einfaldara. Þannig getur þú áhyggjulaust einbeitt þér að því sem skiptir þig mestu máli.

Einfaldara líf

Í langtímaleigu þarf aðeins að sjá bílnum fyrir orku, allt hitt er innifalið.

isuzu_21dmaxvcross4wdtc3b_angularfront_obsidian-grey.png
  • Þjónustuskoðanir
  • Dekkjaþjónusta
  • Tryggingar
  • Smurþjónusta
  • Viðhald
  • Bifreiðagjöld

Viðbótarþjónusta

Viðskiptavinir koma til með að geta nýtt sér margskonar viðbótarþjónustu sem gerir upplifunina enn skemmtilegri og hagkvæmari.

Láttu bóna og þrífa bílinn á betri kjörum

Renndu í gegnum þvottastöðvar á lægra verði

Fáðu ódýrara eldsneyti

Ferlið er einfalt

1

Velja bíl

Veljið bíl á vefnum eða kíkið við í sýningarsali BL á Sævarhöfða 2, Kauptúni 1 eða Hesthálsi 6-8

2

Pantaðu bílinn

Pantaðu bílinn á bl.is eða hjá söluráðgjafa BL

3

Lánshæfi og samningur

Ef umsækjandi stenst lánshæfisreglur okkar klárum við samninginn rafrænt

4

Afhending

Þú mætir á umsömdum tíma í sýningarsal BL og færð nýja bílinn þinn afhendan

Engar áhyggjur af viðhaldi bílsins!

Viðskiptavinir þurfa einungis að mæta með bílinn í þjónustu þegar kallið kemur.

Þjónustuskoðanir

Alltaf i toppstandi

Smurþjónusta

Regluleg smurning

Dekkjaþjónusta

Dekkjaskipti og dekkjahótel

Viðhald

Við sjáum um viðhaldið

Hagkvæmur rekstur

Langtímaleiga unnin í samstarfi við Hertz á Íslandi

Langtímaleiga á nýjum bílum frá BL er unnin í samstarfi við Hertz á Íslandi, sem er ein stærsta bílaleiga landsins.

Nýir bílar sem fara í langtímaleigu eru afhentir hjá BL með sama hætti og allir aðrir nýir bílar frá BL. Viðskiptavinur fær viðeigandi upplýsingar um bílinn og kennslu frá sölufólki á allt það helsta eftir þörfum. Þá er alltaf hægt að leita til sölufólks síðar ef upp koma spurningar varðandi bílinn sjálfan, tækniatriði eða annað slíkt.

Hertz sér um samningagerð og rukkar mánaðarlegt leigugjald skv. samningi. Hertz sér jafnframt um alla þjónustu við bílinn á leigutíma, svo sem smurningu, dekkjaskipti og annað sem snýr að almennu viðhaldi bílsins.

Langtímaleiga

  • Hver er afgreiðslutími langtímaleigubíla?

    Nýir bílar sem eru til á lager eru oftast afhentir eftir 7-14 daga eftir aðstæðum hverju sinni.

  • Er hægt að skila bíl fyrir lok leigutíma?

    Samningar eru bindandi í þann leigutíma sem var valinn í upphafi. Vilji viðskiptavinur skila bifreiðinni fyrir lok umsamins leigutíma er hvert mál skoðað fyrir sig og aðeins að uppfylltum öðrum samningsskilyrðum hverju sinni.

  • Hvar fæ ég langtímaleigubíl afhentan?

    Nýir bílar eru afhentir í sýningarsölum BL að Sævarhöfða, Kauptúni eða Hesthálsi eftir því hvaða bíltegund er um að ræða hverju sinni.

  • Hvað ef bíll verður fyrir skemmdum?

    Verði bifreið fyrir tjóni skal tilkynna slíkt til Hertz við fyrsta tækifæri. Öll tjón fara í tjónameðhöndlun hjá tjónadeild Hertz. Þegar tjón verður á langtímaleigubílum skal tilkynna það á [email protected]

  • Hver er lámarksaldur leigutaka?

    Einstaklingur þarf að hafa náð 23 ára aldri til að leigja nýjan bíl frá BL.

  • Hvernig fara fram skil á langtímaleigubílum?

    Skil langtímaleigubíla miðast almennt við mánaðarmót og opnunartíma. Óski leigutaki að skila langtímaleigubíl utan umsamins skila- og opnunartíma skal hafa samband við sölufulltrúa langtímaleigu Hertz í síma 858 0456 eða á [email protected]

  • Hvaða greiðslumátar eru í boði?

    Almennur greiðslumáti í langtímaleigu er kreditkort. Þegar langtímaleigubíll er sóttur er tekin greiðsla fyrir heilan mánuð í byrjun leigu og eftir það 4. hvers mánaðar.

    Athugið að ferlið í langtímaleigu er þannig að þegar þú tekur bílinn þá greiðir þú mánuð fyrirfram. Þar af leiðandi sé bíll sóttur 21. ágúst þá gjaldfærist heill mánuður þann dag (upphaf leigu) dæmi 65.000 kr. Mánaðarmótin þar á eftir (4/9) gjaldfærist svo aftur fyrir leiguna frá 21/8-31/8. Eftir það um hver mánaðarmót heilt mánaðargjald.

  • Get ég valið dekk sjálf/ur?

    Í upphafi leigu getur viðskiptavinur ákveðið hvort að ökutækið sé afhent á almennum vetrardekkjum eða nagladekkjum. Skipti viðskiptavinur um skoðun á leigutímanum og vill skipta yfir frá því sem upphaflega var valið er hægt að verða við því gegn 11.000 kr. þjónustugjaldi. Þetta á ekki við þegar um hefðbundin árstíðabundin skipti á dekkjum er að ræða. Athugið að alla þjónustu við langtímaleigubíla er hægt að nálgast með tímapöntun á www.hertz.is/timapontun

  • Eru dekkjaskipti innifalin í leiguverði?

    Dekk og dekkjaskipti eru innifalin í langtímaleigu. Það er á ábyrgð leigutaka að fylgjast með ástandi þeirra og koma með ökutækið í dekkjaskipti þegar við á. Hvort sem það er vegna almenns ástands þeirra eða vegna árstíðaskipta. Beðið er á meðan þjónustan er veitt. Athugið að alla þjónustu við langtímaleigubíla er hægt að nálgast með tímapöntun á www.hertz.is/timapontun

  • Hvernig panta ég tíma í smur og þjónustuskoðun?

    Ökutækið þarf að smyrja reglulega, eða á bilinu 10 – 30 þúsund kílómetra fresti eftir bíltegund. Eftir fyrstu smurningu/þjónustuskoðun er kílómetrastaða vegna næstu smurþjónustu tilgreind á límmiða vinstra megin í framrúðu. Það er á ábyrgð leigutaka að koma með bifreiðina í smur og þjónustuskoðanir eftir því sem við á, og getur það varðað sektum ef slíku er ekki sinnt tímanlega. Beðið er á meðan þjónustan er veitt. Athugið að alla þjónustu við langtímaleigubíla er hægt að nálgast með tímapöntun á www.hertz.is/timapontun

  • Ég bý á úti á landi. Hvernig fæ ég þjónustu?

    Hertz er með afgreiðslustöðvar víðsvegar um landið. Til að notfæra sér þá þjónustu þarf að setja sig í samband við viðkomandi leigustöð sem gerir viðeigandi ráðstafanir varðandi t.d. dekkjaskipti eða smur.

    Akureyri sími 522 4440

    Egilsstaðir sími 522 4450

    Ísafjörður sími 522 4490

    Skagaströnd sími 894 4031

    Sauðárkrókur sími 899 2043

    Vestmannaeyjar sími 481 3300

    Bíldudalur sími 892 7890

    Höfn sími 839 1616

  • Er þvottur innifalinn í langtímaleigu?

    Allar langtímaleigur með 12 – 36 mánaða samning geta fengið gjaldfrjálsan þvott á útleigustöð Hertz á Flugvallarvegi 5. Beðið er á meðan þjónustan er veitt. Athugið að alla þjónustu við langtímaleigubíla er hægt að nálgast með tímapöntun á www.hertz.is/timapontun

    *Hámark 1x í mánuði en þó alltaf háð framboði í tímapöntunar kerfi

  • Eru perur og rúðuþurrkur innifaldar í langtímaleigu?

    Innifalið í leigugjaldi eru perur og rúðuþurrkur. Springi pera eða rúðuþurrkur gefa sig þá eru viðskiptavinir velkomnir á allar okkar leigustöðvar og við aðstoðum þig. Athugið að alla þjónustu við langtímaleigubíla er hægt að nálgast með tímapöntun á www.hertz.is/timapontun

  • Hvað með eldsneyti?

    Eldsneyti er ekki innifalið í leigugjaldi. Skila þarf bílnum með fullum eldsneytistanki í lok samningstíma.

    Hertz býður einstaklingum og fyrirtækjum í langtímaleigu uppá sérkjör á eldsneyti í samstarfi við Olís. Það er einfalt að sækja um. Þú kemur við á leigustöð okkar og við göngum frá skráningunni fyrir þig.

  • Þarf að skrá aukaökumenn sérstaklega?

    Ekki þarf að skrá eða greiða sértaklega fyrir aukaökumenn í langtímaleigu.

    Ekki er gerð krafa um lágmarksaldur aukaökumanna. Hins vegar hafa ökumenn með bráðabirgðaskírteini ekki leyfi til að keyra langtímaleigubíla frá Hertz.

  • Hvað á ég að gera ef ég lendi í tjóni?

    Verði bifreið fyrir tjóni skal tilkynna slíkt til Hertz við fyrsta tækifæri. Öll tjón fara í tjónameðhöndlun hjá tjónadeild Hertz. Þegar tjón verður á langtímaleigubílum skal tilkynna það á [email protected]

  • Hvað er mikill akstur innifalinn á mánuði?

    Innifalinn akstur á mánuði er 1.250 km. Hægt er að óska eftir meiri akstri í upphafi leigusamnings ef fyrirséð er að akstursþörfin er meiri. Það er mun hagkvæmara en að greiða fyrir umframakstur í lok leigutíma eða bæta við akstursheimild á miðjum leigutíma.

    Umfram kílómetrar eru gerðir upp í lok leigutíma. Hins vegar fær viðskiptavinur tilkynningu reglulega um að gefa upp núverandi kílómetrastöðu á ökutækinu á www.hertz.is/kilometrar. Sé umframakstur verulegur er viðskiptavini gefið tækifæri á að breyta leigugjaldi sínu í samræmi við það.

  • Má bæta við auka kílómetrafjölda seinna?

    Ef leigutaki vill hækka mánaðarlegan kílómetrafjölda, verður leigutaki að koma með bifreiðina á leigustöð til að láta lesa á kílómetramæli og undirrita nýjan samning. Ef búið er að keyra umfram kílómetrafjölda verður leigutaki að greiða viðkomandi auka kílómetra áður en samningi er breytt. Gott er að hafa samband við [email protected] áður en komið er með bílinn til að semja um nýtt verð.

  • Hvernig greiði ég kílómetragjald hins opinbera?

    Sérstakt kílómetragjald sem er lagt á alla bíla af hálfu Skattsins og Samgöngustofu er ekki innifalið í leigunni. Það bætist því alltaf við leiguverðið.

  • Er leigan vísitölutengd?

    Já hún er vísitölutengd og tekur breytingum um hver áramót.

  • Má fara með ökutæki frá ykkur til útlanda?

    Óheimilt er að fara með ökutæki úr landi sem eru í langtímaleigu.