Jafnlaunastefna
BL ehf.
Jafnlaunastefna BL ehf. miðar að því að gæta fyllsta jafnréttis skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lög nr. 150/2020 og nr. 151/2020, og að hver starfsmaður sé metinn að verðleikum, óháð kynferði, kynþætti, aldri, þjóðerni eða trú. Starfsmönnum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni.