Viðskiptaskilmálar
Viðskiptaskilmálar BL ehf og dótturfyrirtækja
Skilmálar þessir eiga við um öll þau netviðskipti sem eiga sér stað á milli viðskiptavina og eftirfarandi fyrirtækja:
BL ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík, kt: 6302110500
BL – Sævarhöfði ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík, kt: 441223-0800
BL – Hyundai ehf., Kauptúni 1, 210 Garðabær, kt:441223-1020
BL – JLR ehf., Hesthálsi 6-8, 110 Reykjavík, kt: 441223-1610
Áreiðanleikakönnun
Samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er áhættumat grundvöllur að aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
BL ehf., er tilkynningaskyldur aðili skv. r-lið 2. gr. laganna og mun því sölumaður hafa samband við kaupendur bíla eftir að pöntun hefur verið staðfest á vef.
Skil og endurgreiðsla
Skilafrestur vegna kaupa á vöru er 14 dagar frá afhendingu.
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur neytandi 14 daga frá afhendingu til að hætta við kaupin án nokkurra skýringa og fá vöruna endurgreidda. Þessi réttur til að falla frá samningi nær aðeins til neytenda, þ.e. einstaklings sem er kaupandi í viðskiptum í tilgangi sem er óviðkomandi starfi hans.
Til þess að nýta þér réttinn til að falla frá samningi þarft þú að tilkynna okkur ákvörðun þína um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu á netfangið [email protected]. Þú mátt nota staðlaða yfirlýsingu sem þú finnur í lok þessara skilmála.
Þú þarft að endursenda vöruna eða afhenda vöruna til okkar á heimilisfangið, án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þú tilkynnir okkur ákvörðun þína um að falla frá samningnum. Fresturinn telst virtur ef þú sýnir fram á að þú hafir endursent vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins.
Neytandi skal bera kostnað af því að skila vöru ef hann fellur frá samningi. Á það einnig við um kostnað við að skila vöru sem ekki er hægt að endursenda í pósti. Ef þú hafðir val um misdýra afhendingarmáta áskiljum við okkur rétt til að nota sama afhendingarmáta, þó hann sé ekki sá ódýrasti sem völ er á.
Þú getur skoðað vöruna með sama hætti heima hjá þér og þér hefði verið gert kleift inni í verslun okkar. Varan þarf að vera í söluhæfu ástandi til þess að hægt sé að falla frá samningi. Þú er ábyrgur fyrir rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. [GM1]
Réttur til að falla frá samningi á ekki við í tilteknum tilfellum, t.d. ef hún er líkleg til að rýrna eða úreldast fljótt.
Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst varan til baka. Við munum endurgreiða þér með því að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upphaflegu viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt annað sérstaklega.
Verð
Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Öll verð í vefverslun eru birt með fyrirvara um kerfis- og prentvillur og áskilja BL ehf. og dótturfélög þess sér rétt til þess að hætta við sölu án fyrirvara, breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila án samþykkis nema á grundvelli lagaheimilda.
Lögbundin úrræði vegna galla
Komi upp galli í vöru ber þér að tilkynna okkur um gallann án ástæðulauss dráttar frá því að þú varðst var við gallann eða máttir verða hans var. Ef þú ert neytandi er frestur til að leggja fram kvörtun aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að þú varst eða máttir verða gallans var. Ef kvörtun er ekki lögð fram innan tveggja ára frá þeim degi sem þú veittir söluhlut viðtöku getur þú ekki borið gallann fyrir þig.
Ef varan er gölluð er boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað eða endurgreiðum sé þess krafist.
Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið [email protected] með upplýsingum um galla vörunnar.
Viðhaldsþjónusta og viðskiptaábyrgð
Seljanda ber að veita upplýsingar um hvort viðhaldsþjónusta og viðskiptaábyrgð séu fyrir hendi og, eftir því sem við á, hverjir skilmálar þeirra eru. Þessar upplýsingar ættu að útskýra hvar viðhaldsþjónusta fer fram og hver ber kostnað sem hlýst af flutningi vörunnar, ef svo ber undir.
Hér er ekki átt við þjónustu eða viðgerð vegna galla á vöru heldur þegar boðin er samningsbundin ábyrgð eða önnur þjónusta umfram lagaskyldu.
Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög.
Komi upp ágreiningur milli aðila getur viðskiptavinur borið málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, www.kvth.is, Borgartúni 21.
Rísi mál vegna viðskiptanna skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Hafa samband
Ef einhverjar spurningar vakna, varðandi kaup eða þjónustu er hægt að hafa samband með tölvupósti í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 525 8000.
Stöðluð yfirlýsing um að fallið sé frá samningi.
(fylltu út og sendu okkur þessa yfirlýsingu ef þú óskar eftir að falla frá samningnum)
- Til BL ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík, [email protected], sími 525 8000
- Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á eftirfarandi vöru (*)/um veitingu eftirfarandi þjónustu (*)
- Sem voru pantaðar hinn (*)/mótteknar hinn (*)
- Nafn neytanda/neytenda
- Heimilisfang neytanda/neytenda
- Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er á pappírsformi)
- Dagsetning
(*) Eyðið eftir því sem við á
Skilmálar þessir tóku gildi 01.12. 2024.