Kynntu þér vinnustaðanám
Við hjá BL höfum skipulagt starfskynningar sem gera ungu fólki kleift að kynna sér störf í bílgreininni í hinum ýmsu þjónustudeildum fyrirtækisins.
Einstaklingar sem eru áhugasamir og skara fram úr eiga kost á:
Örugg sumarvinna
í líflegu starfsumhverfi með aðgang að mötuneyti og öðrum þeim kostum sem starfsmenn BL hafa aðgang að.
Allur beinn námskostnaður greiddur
BL greiðir allan beinan námskostnað viðkomandi nemanda svo sem bækur, ritföng, skólatösku og annað sem á beinan hátt tengist náminu yfir allan námstímann.
Aðstoð frá mentor
BL úthlutar nemandanum „starfsfóstra“ sem sinnir reglulegum samskiptum við nemanda, foreldra nemanda og kennara eftir atvikum. Starfsfóstri tengir nemanda inn til BL þegar kemur að sumarvinnu auk þess sem hann lætur sig varða námsframvindu viðkomandi nemanda.
Námssamningur
BL býður þeim nemendum sem standast kröfur BL námssamning vegna vinnustaðanáms sem er nauðsynlegur fyrir þá sem taka sveinspróf.
Allir fá tækifæri
Verkstjórar hafa yfirlit með verkum og sjá um að tryggja að starfsfólk fái tækifæri til að takast á við fjölbreytileg viðfangsefni i daglegu amstri. Eftir því sem starfsfólk öðlast meiri reynslu og hæfni hafa þau kost á að afla sér þekkingar innan fyrirtækisins. Meiri þekking og reynsla gefur starfsfólki tækifæri til að tileinka sér meiri sérhæfingu og takast á við verkefni sem hæfa áhugasviði og getu hvers og eins.
Símenntun og alþjóðlegar starfsgráður
Innan þjónustudeilda BL fer fram kennsla sem tryggir nemum í verknámi í bílgreinum fullnaðarmenntun í því námi sem viðkomandi leggur stund á. Þetta tryggir að nemar sem BL ber ábyrgð á öðlist hæfni í öllum þeim þáttum iðngreinarinnar sem iðngreinaskólinn (Borgarholtsskóli) krefur nemendur um samkvæmt námskrá.
GÆTI VERIÐ GAMAN
Að vinna hjá Land Rover á Ítalíu
Starfsmönnum þjónustudeilda BL stendur til boða símenntun sem tryggir þeim færni til að takast á við örar framfarir í bílgreininni. Auk þess fá þeir reglulega að taka þátt í sérhæfðum námskeiðum bílaframleiðenda sem tryggja þeim alþjóðlegar hæfnisgráður og auka möguleika þeirra á að verða gjaldgengir til sambærilegra starfa í öðrum löndum.
Spennandi nám og skemmtilegt starf
Það hefur alltaf verið skemmtilegt að vinna við bíla. Að skilja hvernig einstakir hlutar þeirra vinna saman að því að skila orku út.
Bíliðngreinin er á spennandi tímamótum þar sem ný tækni og nýir orkugjafar bætast við og breyta grundvallar uppbyggingu farartækjanna sem keyra samfélagið áfram að stórum hluta.