Vottuð tjónaviðgerðarþjónusta
BL rekur eitt fullkomnasta verkstæði landsins á sviði tjónaviðgerða á bílum sem byggðir eru að hluta til úr áli og/eða koltrefjum.
BL starfrækir einu vottuðu tjónaviðgerðarþjónustuna fyrir Jaguar Land Rover í Evrópu sem ekki er í eigu framleiðandans. BL er jafnframt eini vottaði viðgerðaraðilinn hér á landi sem er í sambærilegu vottunarferli hjá BMW í Þýskalandi, en sumar gerðir BMW eru að miklu leyti smíðaðar úr koltrefjum.
Tjónaviðgerðir
Réttingar- og málningarverkstæði BL vinnur eftir CABAS-tjónamatskerfinu og sinnir tjónaviðgerðum fyrir viðskiptavini sína frá upphafi verkst til enda. Réttingar- og málningarverkstæði BL sinnir viðgerðum fyrir öll tryggingafélögin.
Skutlþjónusta
Þegar þú kemur með bílinn þinn í skoðun eða til viðgerðar hjá okkur bjóðum við þér upp á ,,skutluþjónustu" - það er að segja að við keyrum þig heim eða til vinnu og sækja síðan aftur þegar bíllinn þinn er tilbúinn. Akstursþjónasta er í boði alla virka daga milli 8:15 og 16:00
Einnig stendur þér til boða bílaleigubíll á mjög hagstæðum kjörum meðan við þjónustum bílinn þinn. Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni er þetta frábært kostur - kynntu þér verð og úrval bílaleigubíla þegar þú pantar tíma hjá okkur.
Hvað getum við
gert fyrir þig?
gert fyrir þig?